12 Erfðavenjur GA…
Erfðavenjur GA – samtakanna eru rammi til farsældar fyrir einstakar deildir og samtökin í heild. Erfðavenjurnar eru lagðar fram í tólf liðum og eiga að tryggja samhengi og áframhaldandi starf Gamblers Anonymous.
1. | Sameiginleg velferð okkar ætti að sitja í fyrirrúmi, bati hvers og eins er undir einingu GA kominn. |
2. | Forsvarsmenn okkar eru aðeins þjónar sem við treystum – ekki stjórnendur. |
3. | Til þess að gerast GA félagi þarf aðeins eitt, löngun til að hætta fjárhættuspili. |
4. | Sérhver deild ætti að vera sjálfráða, nema í málefnum sem snerta aðrar deildir eða GA sem heild. |
5. | GA hefur aðeins eitt meginmarkmið, að flytja spilafíklum, sem enn þjást boðskap sinn. |
6. | GA ætti aldrei að standa að, leggja fé til eða lána nafn sitt neinum skyldum aða óskyldum aðilum, til þess að fjármunir, eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki hinum upphaflega tilgangi. |
7. | Sérhver GA deild ætti að standa á eigin fótum og hafna utanaðkomandi aðstoð. |
8. | GA – samtökin eiga ávalt að vera áhugamannasamtök en þjónustumiðstöðvar okkar meiga ráða launaða starfskrafta. |
9. | GA – samtökin sem slík ætti aldrei að skipuleggja, en við getum myndað ráð eða nefndir sem eru ábyrgar gagnvart þeim sem þær þjóna. |
10. | GA – samtökin taka enga afstöðu til annarra málefna en sinna eigin, nafni þess ætti því að halda utan við opinberar deilur. |
11. | Afstaða okkar út á við byggist á aðlöðun fremur en áróðri og nafnleyndar skyldum við ætíð gæta á vettvangi fjölmiðla. |
12. | Nafnleyndin er hinn andlegi grundvöllur batastefnu GA og minnir okkur á að setja málefni og markmið ofar eigin hag. |